AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Greidd atkvæði um verkfall

Atkvæðagreiðsla bræðslumanna í AFLi og Drífanda um verkafallsboðun í fiskimjölsversmiðjum er hafin. Trúnaðarmenn félaganna dreifa atkvæðaseðlum í dag en frestur til að greiða atkvæði er til 25. janúar.  Fulltrúar félaganna verða á Þórshöfn í dag og hitta formann Verkalýðsfélags Þórshafnar en félagið þar hefur ekki boðað til aðgerða í fiskimjölsverksmiðjunni. Fiskimjölsverksmiðjan á Þórshöfn er í eigu Ísfélags Vestmannaeyja.

Mót nýju ári

AFL Starfsgreinafélag, stjórn og starfsfólk, óskar  félagsmönnum, viðsemjendum og landsmönnum öllum farsæls komandi árs og þakkar samstarfið á liðnu ári.

Samninganefnd falið að undirbúa aðgerðir

Á fundi trúnaðarráðs AFLs Starfsgreinafélags sem nú stendur yfir hefur verið samþykkt tillaga þar sem samninganefnd félagsins og Drífanda í Vestmannaeyjum er falið að hefja undirbúning aðgerða - þ.m.t. verkfalla í fiskimjölsverksmiðjum. Þá samþykktu samninganefnd AFLs fyrr í dag að skipa aðgerðarhóp til að undirbúa aðgerðir og skipuleggja.

Lesa meira

Tillaga er fulltrúar AFLs á Ársfundi ASÍ 2008 lögðu fyrir fundinn

frettabrefTillagan hlaut lítinn hljómgrunn annarra fulltrúa og ein eða
tvær setningar úr henni rötuðu í ályktun fundarins um kjaramál Visitala

Það eru erfiðir tímar, 30% hækkun launa? Óðaverðbólga og kaupmáttarskerðing? Þjóðarsátt með takmörkuðum hækkunum launa og samstöðu allra um enduruppbyggingu samfélagsins. Eru fyrirsagnir 1. tbl. fréttabréfs AFLs sem kom út samhliða Austurglugganum, sjá fréttabréfið.

Samkomulag við ALCOA samþykkt

Talningu er lokið í  atkvæðagreiðslu um samkomulag sem gert var við Alcoa þann 9. desember s.l. Á kjörskrá voru 379.

Atkvæðu greiddur 240 eða 63,3%

Já sögðu 216 eða 90%

Nei sögðu 24 eða 10% 

Samkomulagið er því samþykkt

Lesa meira

Samkomulag við ALCOA

AFL og RSÍ hafa gegnið frá samkomulagi við Alcoa fjarðarál um greiðslur til starfsmanna á meðan unnið verður að gerð nýs kjarasamnings.

Samningurinn rann út 30. nóvember s.l.

Lesa meira

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi