AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Mótmælum niðurskurði á HSA

Fyrirhuguðum niðurskurði á heilbrigðisþjónustu á Austurlandi verður mótmælt á sunnudag kl. 13:00 á Seyðisfirði. Niðurskurðurinn sem boðaður hefur verið mun hafa veruleg áhrif og er talið að 90 - 100 starfsmönnum HSA verði sagt upp og þjónusta stórlega skert.

AFL hvetur Austfirðinga til að láta til sín taka í mótmælum gegn þessari aðför að lífskjörum og öryggi íbúa.

Útleiga orlofsíbúða um jól og áramót

thumb_klettaborg30akureyriEins og undanfarin ár þá verður orlofsíbúðum AFLs Starfsgreinafélags í Reykjavík og á Akureyri, úthlutað um jól og áramót.
Tímabilin eru: • Jól 22. des - 29. des. og  • Áramót 29. des - 5. jan. Frestur til þess að sækja um þessi tímabil er til 15. október, sjá umsóknareyðublað. Einnig er hægt að sækja um á skrifstofum félagsins. Stefnt er að því að úthlutun geti farið fram 22. október.
Allir umsækjendur munu fá svarbréf við umsóknum sínum.

Hefur þú einhverja skoðun?

Nú eru að verða síðustu forvöð að skrá sig á kjaramálaráðstefnu AFLS á laugardag. Færri þátttakendur eru skráðir nú en oft áður en skráningar eru tæplega 40 sem stendur. Aðalræðumaður ráðstefnunnar verður Ólafur Þ. Harðarson, prófessor, sem mun fjalla um þær samfélagsbreytingar sem orðið hafa í kjölfar bankakreppunnar.

Meginvinna á ráðstefnunni verður í vinnuhópum þar sem allir þátttakendur eru virkjaðir til að fá fram skoðanir og viðhorf sem flestra.

Lesa meira

Góð samstaða á formannafundi ASÍ

Á formannafundi Alþýðusambandsins í gær ræddu formenn aðildarfélaga undirbúning kjarasamninga - sem að mati margra geta orðið þeir erfiðustu og flóknustu um langt árabil. Fram kom að í ákveðnum atvinnugreinum - og/eða landssvæðum telja menn lítil færi til sóknar í kjaramálum á meðan aðrar atvinnugreinar eru taldar ráða við jafnvel talsverðar launahækkanir.

Lesa meira

Sækjum fram af hörku!

Um 40 félagsmenn AFLs komu saman sl. laugardag á Kjaramálaráðstefnu félagsins sem var óvenju fámenn og má rekja það að hluta til vinnuálags í fiskvinnslu og sláturhúsum á svæðinu. Ráðstefnan fór þannig fram að þátttakendur unnu í hópum og var síðan afgreidd sameiginleg ályktun eftir um 3 tíma hópavinnu.

Óvenju hvass tónn er í kjaramálahluta ályktunar fundarins og m.a. hvatt til þess að kjarabætur verði sóttar af fullri hörku til útflutningsfyrirtækja og að félagið haldi samningsumboði sínu heima í héraði. Sjá ályktunina neðar á síðunni.

Áður höfðu þau framsögu, Ólafur Þ. Harðarson, prófessor, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs, Sverrir Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs og Sverrir Kr. Einarsson, trúnaðarmaður AFLs í Eskju.

Lesa meira

Century kært fyrir brot á vinnulöggjöf

United Steel Workers verkalýðsfélagið í Bandaríkjunum hefur kært Century Aluminium, álfyrirtækið sem rekur Norðurál og áformar byggingu álvers í Helguvík, fyrir brot á vinnulöggjöfinni þar í landi.

Fyrirtækið hefur ítrekað hótað starfsmönnum í álverksmiðju í Hawesville, Kentucky, sem eiga í vinnudeilu við fyrirtækið, því að álverinu verði lokað komi til verkfalla starfsmanna eða samþykki þeir ekki tilboð fyrirtækisins varðandi endurnýjun á kjarasamningi.

Lesa meira

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi