AFL starfsgreinafélag

Starf - vinnumiðlun og ráðgjöf

1. júní 2012 tók AFL Starfsgreinafélag yfir þjónustu við þá atvinnuleitendur á Austurlandi sem eru félagsmenn í aðildarfélögum ASÍ.

Nokkur stéttarfélög á Austurlandi, á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum, eru aðilar að þriggja ára tilraunaverkefni sem tekur við hlutverki vinnumiðlunar og vinnumarkaðsúrræða af Vinnumálastofnun fyrir félagsmenn þeirra sem eru atvinnuleitendur.  Tilraunaverkefnið er skipulagt af Starf-vinnumiðlun og ráðgjöf (STARF), sem er félag sem Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins stofnsettu til að halda utan um verkefnið og annast faglega stýringu þess.  Sérstakir atvinnuráðgjafar á vegum STARF hafa verið ráðnir af stéttarfélögunum til að annast þjónustuna.

AFL Starfsgreinafélag sér um þjónustuna við þau stéttarfélög á Austurlandi sem eru aðilar að ASÍ.


AFL Starfsgreinafélag er með þjónustumiðstöðvar um allan fjórðung og er starfsfólkið boðið og búið til þess að veita ykkur þá þjónustu sem þið þurfið.  Auk þess hafa þær Karen Erla Erlingsdóttir og Gréta Garðarsdóttir sérstaklega verið ráðnar í þetta verkefni.

  • Gréta Garðardsóttir:   4 700 323 / This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Breytingar á lögum um atvinnuleysistr. nr. 142 2012.

  1. Frá og með 1. jan. er greiðslutímabil atvinnuleysisbóta 1. til 30. (31.), ekki líkt og áður frá 20. til 19. Staðfestingartíminn er áfram 20. til 25. hvers mánaðar. Greitt var fyrir 20. - 31. des. þann 7. janúar.
  2. Fólk á ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en það er orðið 18 ára (16. ára áður). Ávinnslutíminn nær þó frá 16. ára sem þýðir að vinnuveitendavottorð gildir frá 16. ára aldri.