AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Landsvirkjun samþykkir keðjuábyrgð

KedjuAbyrgð

Því ber að fagna að Landsvirkjun hefur samþykkt reglur um keðjuábyrgð, en reglunum er ætlað að tryggja að allir sem vinni fyrir Landsvirkjun á óbeinan hátt, hjá verktökum, undirverktökum eða starfsmannaleigum, njóti réttinda og kjara í samræmi við lög og kjarasamninga. Verkalýðshreyfingin hefur kallað eftir þessum reglum í langan tíma og Starfsgreinasambandið hvetur önnur opinber fyrirtæki og stofnanir til að setja sér slíkar reglur líka.

Á heimasíðu Landsvirkjunar kemur fram að:

„Stjórn Landsvirkjunar samþykkti reglurnar á fundi sínum í lok ágúst. Ákvæði um ábyrgð verður héðan í frá sett inn í alla innlenda samninga Landsvirkjunar um innkaup, þ.e. verksamninga, vörusamninga og samninga um kaup á þjónustu. Samkvæmt ákvæðinu, sem sett verður inn í samninga Landsvirkjunar, skal verktaki tryggja og bera ábyrgð á að allir starfsmenn, hvort sem um ræðir starfsmenn verktaka, undirverktaka eða starfsmannaleiga, fái laun, starfskjör, sjúkra- og slysatryggingar og önnur réttindi í samræmi við samninginn, gildandi kjarasamninga og lög hverju sinni.

Að auki ber verktaki ábyrgð á og skal hafa í gildi og viðhalda tryggingum fyrir tjóni vegna slysa, veikinda, sjúkdóma, sjúkrakostnaðar eða dauða sem starfsmenn verktaka verða fyrir og rekja má til framkvæmda. Verktaki ber ábyrgð á að undirverktakar og starfsmannaleigur og starfsmenn þeirra hafi samskonar tryggingar.

Hingað til hafa samningar fyrirtækisins kveðið á um að mótaðilar – verktakar, undirverktakar og starfsmannaleigur – fari í öllu eftir lögum og samningum sem gilda á vinnumarkaði, en með nýja ákvæðinu er ábyrgðin nánar skilgreind, auk þess sem  Landsvirkjun fær úrræði til að framfylgja því að reglunum sé fylgt, þar sem það kveður á um viðurlög, brjóti mótaðili gegn ákvæðinu eða veiti ekki umbeðnar upplýsingar.“  (Fréttin er af vef Starfsgreinasambands Íslands)

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi