AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Innbrot og slæm umgengni

Brotist var inn í starfsmannaaðstöðu í orlofsíbúðanna í  Stakkholti í Reykjavík um síðustu helgi. Vætanlega hafa þjófarnir verið að stofna heimili eða eru að hefja gistihúsarekstur því aðallega var stolið merktum rúmfatnaði og handklæðum.  Þannig ef félagsmenn sjá rúmföt eða handklæði merkt AFLi einhvers staðar á flækingi - þá vinsamlega hafa samband við okkur. Einnig varð verktaki á vegum AFLs fyrir nokkru tjóni en stolið var verkfærum frá honum.

Því miður hefur farið vaxandi að félagsmenn hafa skilið illa við - með skemmdum á innanstokksmunum og miklum óþrifum. Þá hefur og verið kvartað nokkuð undan partístandi í íbúðum hjá okkur.  Vert er að vekja athygli á að innheimt er af fullum þunga fyrir öllum skemmdum og aukaþrifum - auk þess sem viðkomandi félagsmenn fara í leigubann í allt frá þremur mánuðum upp í nokkur ár - eftir því hversu alvarlegt málið er.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi