AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Orlofsuppót greiðist 1. júní

Gjalddagi orlofsuppbótar er 1. júní í ár í stað 15. ágúst eins og verið hefur. Upphæð orlofsuppbótar fer eftir því hvaða kjarasamningi er unnið eftir. Í töflunni hér að aftan er gefið til samanburðar upphæð orlofsuppbótar síðasta árs og upphæð til greiðslu nú.

                                                                                  

                                                                      2007         2008

 Verkamenn (hótel og veitingast.)    23.000 kr
 24.300 kr
 Iðnaðarmenn  
  23.000 kr  24.300 kr
 Iðnnemar 
  17.100 kr   24.300 kr
 Starfsmenn sveitarfélaga
  23.000 kr  23.600 kr
 Starfsmenn ríkisstofnana
  23.000 kr  24.300 kr
 Starfsmenn Alcoa Fjarðarál 103.000 kr 105.000 kr
Verslunar og skrifstofufólk 
  17.400 kr
 18.400 kr
     

 

  


Réttur til orlofsuppbótar:

Almenni markaðurinn (verkafólk, iðnaðarmenn og verslunarmenn)

Uppbótin greiðist þann 1. júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á árinu, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi 1. maí

Orlofsuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótanna.

Starfsmenn hjá sveitarfélögum

Þann 1. maí skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl fá greidda orlofsuppbót er miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Þeir starfsmenn sem látið hafa af störfum á orlofsárinu eftir a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) samfellt starf fá greitt hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall.

Sjómenn fá ekki greidda orlofsuppbót.

Starfsmenn hjá Ríkinu

Þann 1. júní skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl fá greidda orlofsuppbót, greidd er full uppbót til þeirra sem verið hafa í fullu starfi næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Þeir starfsmenn sem látið hafa af störfum á orlofsárinu eftir a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) samfellt starf fá greitt hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall.

Alcoa Fjarðarál

Starfsmenn sem starfað hafa 45 vikur í fullu starfi (tímabilið 1. maí – 30. apríl) fá greidda  100% orlofsuppbót með maílaunum, en greitt er  hlutfalslega til þeirra sem verið hafa í hlutastarfi svo og ef unnið er hluta úr ári en látið hefur verið af stöfum eftir a.m.k. 20 vikna starf. Starfsmaður sem lætur af störfum á orlofsárinu eftir 12-19 vikna samfellt starf skal við starfslok fá greidda orlofsuppbót sem reiknast 30% af uppbót. Starfsmenn sem eru í starfi síðustu viku í apríl eða fyrstu viku í maí eiga  rétt á hlutfallslegri orlofsuppbót ( þótt þeir hafi starfað í skemur en 12 vikur).

 

ATH: Verið er að uppfæra upplýsingar á Kjaramálavef AFLs um orlofsuppbót 

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi