AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Trúnaðarráð AFLs boðað til fundar

Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs Starfsgreinafélags, hefur boðað trúnaðarráð félagsins til fundar næstkomandi mánudag. Fundurinn hefst klukkan 18:00 og fer fram á Hótel Héraði á Egilsstöðum.

Á dagskrá eru efnahags-og kjaramál, kosning formanns kjörstjórnar, kjör samninganefndar félagsins og önnur mál.

Á fundinum mun formaður leggja fram tillögu um að trúnaðarráð skipi samninganefnd félagsins. Verði sú tillaga samþykkt verður strax boðað til fundar samninganefndar félagsins og fjallað um samningsumboð vegna komandi samninga við Launanefnd sveitarfélaga.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi