AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Lögmaður AFLs um dóminn

KárahnjúkarÍ dag féllu í Héraðsdómi Austurlands dómar í 12 málum lettneskra starfsmanna gegn GT verktökum ehf. og lettnesku starfsmannaleigunnar Nordic Construction Line SIA. Lyktir málanna voru þær að GT verktakar voru sýknaðir en Nordic Construction Line, sem er í eigu sömu aðila og GT verktakar, var dæmt til að greiða mönnunum vangreidd laun.

Forsaga málsins var sú að í október 2007 sendu lettnesku starfsmennirnir tölvupóst til AFLs Starfsgreinafélags þar sem þeir töldu sig ekki fá greidd rétt laun frá vinnuveitendum sínum, sem þeir sögðu þá vera GT verktaka. Af stað fór mikil vinna hjá starfsmönnum AFLs og lögmanni félagsins, auk lögreglu, enda voru ákveðin brot kærð þangað og hafa verið í meðförum hennar síðan.

Í byrjun árs 2008 náðist samkomulag utan réttar milli aðila um hluta ágreiningsefnisins. Það  fól í sér að mönnunum 12 og einum til viðbótar voru greiddar nettó kr. 4.216.063 vegna launa í byrjun október 2007 og á uppsagnarfresti. Sá ágreiningur sem þá stóð eftir var síðan borinn undir dómstóla.

Kröfur fyrir dómi í málunum 12 voru þríþættar:
1.    Í öllum málunum var kjarni ágreiningsins sá að starfsmennirnir héldu því fram að þeir hefðu verið látnir kvitta fyrir móttöku hærri útborgunargreiðsla í byrjun september og byrjun október en þeir raunverulega höfðu fengið. Taldi dómurinn sannað með framlagningu gagna og framburði vitna að svo hefði verið og féllst að fullu á kröfur mannanna vegna þessa, sem samtals námu nettó kr. 1.931.817.
2.    Í þremur málanna var líka ágreiningur um laun á uppsagnarfresti og hvort starfsmönnum sem þar um ræddi hefði verið rétt að leggja niður störf sín við þær aðstæður sem upp voru komnar. Féllst dómurinn á sjónarmið starfsmannanna og tók að fullu til greina kröfur þeirra um laun á uppsagnarfresti sem samtals námu brúttó kr. 1.157.666.
3.    Að lokum var líka uppi ágreiningur í þremur málanna um það hvort ráðningartími þriggja starfsmanna hefði verið u.þ.b. 1,5 mánuður eða 3 mánuðir. Sýknað var af kröfum er varða þennan lið.

Þannig unnust 9 af málunum 12 að fullu en 3 þeirra að hluta. Starfsmönnunum var síðan dæmdur málskostnaður úr hendi NCL.

Í málunum 12 var ekki talið sannað að GT verktakar væri vinnuveitandi starfsmannanna sem um ræddi, heldur starfsmannaleigan NCL. Í dómunum er þó sérstaklega tekið fram að málsatvik í málunum sem hér voru uppi bendi fremur til þess en málsatvik í dómi Hæstaréttar nr. 276/2006 (sem sneri að fyrirtækinu Impregilo og starfsmannaleigunni Select) að tilgreining NCL sem vinnuveitanda starfsmannanna hafi verið til málamynda. Það var þó ekki talið nægjanlegt til sönnunar þar um en var þó látið valda því að GT verktökum var ekki dæmdur málskostnaður. Segir dómurinn það vera vegna þess vafa sem uppi var í málunum um að hvort beina skyldi kröfum að GT verktökum eða NCL. Sýnir þetta hversu erfitt það getur verið fyrir starfsmenn að henda reiður á hver raunverulegur vinnuveitandi þeirra er. Jafnframt er ljóst að þessi niðurstaða getur gert alla innheimtu krafna og eftirfylgni þeirra örðugri en verið hefði ef GT verktakar hefðu verið dæmdir til greiðslu. Það skal þó tekið fram að alls óvíst er að til einhverra innheimtuaðgerða þurfi að koma, en vel getur verið að eigendur og stjórnendur NCL, sem eins og áður sögðu eru þeir sömu og eiga og stjórna GT verktökum, hlutist til um að fyrirtæki þeirra greiði þær kröfur sem það hefur verið dæmt til að greiða.

Dómana í málunum í heild sinni má finna á heimasíðu Héraðsdóms Austurlands, www.domstolar.is/austurland.

Egilsstöðum, 18. desember 2008
Eva Dís Pálmadóttir hdl., lögmaður AFLs Starfsgreinafélags og starfsmannanna 12

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi