AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Fundarferð lokið - fundur samninganefndar AFLs

Fundarferð formanns AFLs og starfsfólks á vinnustaði og þéttbýliskjarna félagssvæðisins lauk með vinnustaðafundi hjá verktakafyrirtækinu Myllunni í hádeginu. Í kvöld hefur verið boðaður samninganefndarfundur AFLs og verður þar fyrirhuguð endurskoðun kjarasamninga til umræðu. Fundarferð formanns AFLs Hjördísar Þóru og starfsfólks félagsins hefur gengið vel og hafa 52 vinnustaðir verið heimsóttir á síðustu 10 dögum en félagssvæðið spannar allt frá Skeiðará og norður til Bakkafjarðar. Hjördís mun gera stjórn félagsins grein fyrir umræðum á vinnustaðafundunum á fundi stjórnar sem verður seinnipartinn í dag en í kvöld fundar Samninganefnd félagsins.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi