AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Ný sýn í kjaramálum?

Sjónarmið AFLs Starfsgreinafélags urðu undir á formannafundi ASÍ í febrúar mánuði þegar frestun umsaminna launahækkana fékk stuðning meirihluta formanna Alþýðusambandsfélaga. Arðgreiðslur HB Granda hafa síðustu daga valdið miklum óróa á vinnumarkaði og hafa m.a. forystumenn verkalýðshreyfingarinnar skorað á fyrirtækið að "standa við umsamdar launahækkanir".

Á stjórnarfundi AFLs í dag verður þetta mál tekið fyrir en félagsmenn AFLs fengu ekki, frekar en aðrir láglaunahópar í þjóðfélaginu, launahækkun 1. mars sem þó var inni í kjarasamningum. Á meðan berast fréttir um að verið sé að ganga frá kjarasamningum fyrir aðra hópa með launahækkunum.

Hjördís Þóra, formaður AFLs, segir að hún fagni sinnaskiptum forystumanna, sem fyrir mánuði síðan töldu fyrirhugaða launahækkun setja atvinnulífið á hliðina. Hún segir að ekki sé fyrirhugað að álykta um málið á fundinum í dag en hún muni leita samráðs við stjórnarmenn um það hvernig skuli haldið á málum til næstu framtíðar.

Afstaða AFLs byggði á mikilli fundarferð þar sem formaður og aðrir starfsmenn heimsóttu um 55 vinnustaði og héldu almenna félagsfundi í hverjum byggðakjarna. Stefna AFLs var síðan sett fram í samþykkt samninganefndar AFLs.


Samningnefnd AFLs Starfsgreinafélag samþykkir eftirfarandi:

Forsendur kjarasamninga er undirritaðir voru í febrúar 2008 eru brostnar.
Samninganefnd AFLs krefst þess að staðið verði við þau ákvæði aðalkjarasamninga er varða launahækkanir 1. mars nk. Telji Samtök Atvinnulífsins fyrirtækin ekki geta staðið við þann hluta kjarasamninganna er eðlilegt að þau segi samningunum lausum.

Komi til þess að forsendunefnd telji að unnt sé að ná samkomulagi, sem telja megi til hagsbóta í ljósi þungra aðstæðna í efnahagslífi, en sem þó stenst ekki lágmarkskjör gildandi samninga, hvetur samninganefnd AFLs til þess að frágangi slíks samkomulags verði vísað til samninganefnda landssambanda ASÍ þannig að unnt sé að láta fara fram allsherjaratkvæðagreiðslu innan hvers sambands.

Í ljósi umróts í þjóðfélaginu er brýnt að verkalýðshreyfingin gangi í fararbroddi opinna og lýðræðislegra skoðanaskipta og ákvarðanatöku. Þar sem umboð forsendunefndar ASÍ og SA er óljóst telur samninganefnd AFLS eðlilegt að ákvörðunum um skerðingu kjara, verði vísað til félagsmanna, þ.e. þeirra sem með atkvæðum sínum gerðu samningana gilda og gáfu forsendunefndinni umboð sitt.

Samninganefnd AFLs bendir á að á næstu misserum muni hagsmunabarátta á Íslandi harðna til muna þar sem færri krónur eru til skiptanna og vandamálin fleiri en áður hefur þekkst. Það er brýnt að verkalýðshreyfingin fylki sér og efli samstöðu til að búa sig undir að verja grundvöll velferðarkerfisins.

Samninganefnd AFLs hvetur forystu Alþýðusambandsins til að vera það forystuafl sem launafólk þarf á að halda.

11. febrúar 2009

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi