AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

AFL semur við sveitarfélögin!

AFL Starfsgreinafélag hefur undirritað framlenginu á gildandi kjarasamningi við Launanefnd sveitarfélaga með nokkrum breytingum í anda stöðugleikasáttmála er gerður var í síðustu viku. 

Megináhersla var lögð á að hækka launataxta sem eru undir 180.000 kr. og kemur sú hækkun í þremur áföngum. Laun hækka nú frá 1. júlí, 1. nóvember nk. og 1. júní 2010.

Samtímis undirritun AFLs rituðu Starfsgreinasambands Íslands, Kjölur Stéttarfélag, Samflot og Efling Stéttarfélag undir samhljóða samninga.

Gildistími samnings er 1. júlí 2009 – 30. nóvember 2010. Ný launatafla tekur gildi frá 1. júlí 2009. Launataxtar. Mánaðarlaun fyrir dagvinnu allt að kr. 180.000 hækka 1. júlí 2009 og 1. nóvember 2009 um kr. 6.750.-  en hækka minna frá 180.000 kr. að 210.000. Laun umfram 210.000 kr í júlí og 220.000 kr. í nóvember 2009 taka ekki hækkunum.  Mánaðarlaun fyrir dagvinnu allt að kr. 180.000.-  hækka 1. júní 2010 um kr. 6.500.- en hækka minna að kr. 225.000. Mánaðarlaun fyrir dagvinnu umfram kr. 225.000.- eru óbreytt. Starfsmenn í tímamældri ákvæðisvinnu og ræstingu samkvæmt fermetragjaldi hækka, sjá nánar meðfylgjandi skjal. Lágmarkslaun fyrir fullt starf skulu vera kr. 157.000.- frá 1. júlí 2009, kr. 165.000.- frá 1. nóvember 2010 og kr. 170.000.-  frá 1. júní 2010, fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sömu stofnun. Orlofsuppbót árið 2010 verður kr. 25.800.- 

Félagsmönnum verður sendur kynningarbæklingur á næstunni og er stefnt að því að atkvæðagreiðslu um samkomulagið ljúki ekki seinna en 14. ágúst næstkomandi. Félagsmenn eru hvattir til að greiða atkvæði um samninginn. Sjá--Samkomulag um framlengingu og breytingar á kjarasamningi

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi