AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Aðalfundur sjómanna 2009

thumb_sjmannafundur_2009Aðalfundur í sjómannadeild AFLs var haldinn í gær á Reyðarfirði. Undir liðnum kjaramál var eftirfarandi ályktun samþykkt um skattamál sjómanna.

Aðalfundur sjómannadeildar AFLs Starfsgreinafélags átelur stjórnvöld fyrir lagabreytingar á skattaumhverfi sjómanna án þess að tekið sé tillit til sögu sjómannaafsláttarins. Krafa fundarins er að lögin verði afturkölluð eða að sjómenn fái í hans stað dagpeninga líkt og aðrar stéttir sem stunda vinnu fjarri heimili og skorar fundurinn á útvegsmenn að standa með sjómönnum í þessum efnum. Fundurinn minnir jafnframt á að sjómenn þurfa einir stétta að greiða fyrir eldsneyti á sínum vinnustað með þátttöku í olíukostnaði útgerðar.

Í stjórn deildarinnar voru kosnir:

 Formaður   Grétar Ólafsson  
Varaformaður Stephen R. Johnson 

Meðstjórnendur Jón. B. Kárason
    Ólafur Logi Árnason
    Grétar Smári Sigursteinsson 

Varamenn í stjórn Sigurd  Jón Jacobsen
    Þorsteinn J. Þorsteinsson
    Unnsteinn R. Kárason.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi