AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Stjórnvöld hafa brugðist

Stjórn AFL Starfsgreinafélags samþykkti á fundi sínum sem var að ljúka eftirfarandi ályktun. Miklar umræður voru á fundinum um stöðu efnahagsmála.

Stjórn AFLs Starfsgreinafélags harmar þá upplausn sem orðin er í yfirstjórn landsins. Þeir stjórnmálamenn sem fara í forystu stjórnmálaflokka landsins hafa algerlega brugðist þeirri skyldu sinni að leiða þjóðina upp úr efnhagskreppu og skapa sátt um nauðsynlegar aðgerðir.

Úr því sem komið er telur stjórn AFLs Starfsgreinafélags þjóðaratkvæðagreiðslu um samþykki eða synjun Icesave samnings einu raunhæfu leiðina til að losa þjóðina úr þeirri pattstöðu sem málið er komið í. Stjórnin hvetur jafnframt félagsmenn sína sem og aðra til að taka málefnalega afstöðu til málsins og fara að sannfæringu sinni.

Stjórn AFLs telur að stjórnvöld hafi frá hruni bankakerfisins í október 2008 brugðist því hlutverki að skapa sátt í samfélaginu um viðbrögð og aðgerðir. Almenningur upplifir vaxandi óréttlæti  og að þeir sem stefndu þjóðfélaginu í óefni  njóta enn eigna sinna á meðan þúsundir heimila almenns launafólks glíma við alvarlega greiðsluerfiðleika og eignaupptöku.

AFL Starfsgreinafélag varar við því að ef ekki tekst að ná einhverri sátt í samfélaginu munu átök m.a. á vinnumarkaði eiga eftir að harðna til muna á næstu misserum. Ennfremur lýsir félagið áhyggjum sínum af því að viðvarandi óvissa í efnahagsmálum stefnir grunnstoðum velferðarkerfisins í voða og að ef ekki tekst að halda áfram efnahagsáætlun stefnir í annað og ekki minna áfall en við glímum við nú þegar.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi