AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

SGS leggur fram samningstilboð

SGS hefur lagt fram tilboð að kjarasamningi við SA. Tilboð SGS hljóðaði upp á samning til eins árs með 15.000 kr. taxtahækkun frá 1. mars að telja og almenna kauphækkun upp á 4,5% svo og hækkun lágmarkstekjutryggingar í 200.000 kr.  Auk þess sem SGS lagði áherslu á að þar sem samkomulag hefur náðst í sérmálum undanfarnar vikur – héldi það samkomulag inn í nýjan samning. Er viðræðum var slitið sl. föstudag var enn ósamið í málefnum ræstingar og fiskvinnslu og er lögð áhersla á að ná sátt í þeim málum næstu daga.Samningaviðræðum undir forystu samninganefndar ASÍ við SA var slitið á föstudagskvöld er Samtök Atvinnulífsins slitu viðræðum vegna ágreining við ríkisstjórnina um fiskveiðistjórnunarmál.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi