AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Höfnum pólitískum afskiptum af rammaáætlun

Miðstjórn Samiðnar skorar á Alþingi að láta af flokkspólitískum inngripum í rammaáætlun um orkunýtingu. Samþykkt Alþingis á upphaflegu áætluninni, sem byggir á faglegu mati og sjónarmiðum sátta í samfélaginu, er nauðsynleg svo rjúfa megi þá stöðunum sem skapast hefur um virkjunarkosti í landinu.

"Megin tilgangur rammaáætlunar um orkunýtingu er að leggja faglegt mat á  virkjunarkosti út frá sjónarmiði fjárhagslegrar  hagkvæmni, náttúruverndar og  ekki síst leggja grunn að víðtækri  sátt í samfélaginu.

Sú tillaga að rammaáætlun um orkunýtingu sem liggur fyrir Alþingi hefur verið lengi í vinnslu og að baki henni liggur gríðarleg vinna fagfólks.  Lögð hefur verið áhersla á að hafa fagleg sjónarmið að leiðarljósi og halda flokkspólitískum sjónarmiðum frá.  

Nú hafa  stjórnarflokkarnir  gripið inn í og gert tillögur að  breytingum  og lagt til að  5 virkjunarkostir verði fluttir  úr nýtingarflokki yfir  í biðflokk. Þar af eru 3 virkjunarkostir í Þjórsá sem  eru nánast tilbúnir til uppbyggingar. Eins og tillagan að rammaáætlun lítur út eftir pólitísk inngrip stjórnarflokkanna eru nánast engir vatnsfallsvirkjunarkostir eftir í nýtingarflokki.  

Samiðn mótmælir  harðlega pólitískum inngripum  stjórnvalda og að fagleg sjónarmið  séu látin víkja fyrir þröngum flokkslegum hagsmunum.  Rammaáætlun um orkunýtingu  sem ríkisstjórnir á hverjum tíma höndla að eigin geðþótta er máttlaust verkfæri sem tryggir ekki faglegt mat við ákvörðunartöku, aukna sátt í samfélaginu um nýtingu auðlynda og verndum náttúru. 

Samiðn skorar á Alþingi að snúa af villu vegar og hætta öllum inngripum í rammaáætlun um orkunýtingu og láta eingöngu fagleg sjónarmið ráða.  Einnig hvetur Samiðn alþingismenn til að sammælast  um að afgreiða upphaflega tillögu að rammaáætlun á yfirstandandi þingi svo hægt sé að rjúfa þá stöðnun sem óvissa um virkjunarkosti hefur valdið."

 

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi