AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Yfirlýsing framkvæmdastjóra AFLs Í kjölfar árása vertsins hjá Café Margaret

cafe_margaretHorst Wolfang Mueller kom fram í fréttum í gærkvöld og sakaði mig m.a. um atvinnuróg og útlendingahatur og ýmislegt fleira. Staðreyndir málsins eru m.a. þessar:
  •  Margoft hefur þurft að hafa afskipti af launamálum og framkomu veitingahaldara á Café Margaret í gegnum árin. Fyrir nokkrum árum var gerð sátt við Vökul Stéttarfélag (eitt stofnfélaga AFLs) vegna launa starfsfólks það sumar. Eitt mál er í innheimtuferli.
  • Lesa meira

    Ráðist á starfsfólk AFLs

    Skrifstofa SverrisVeitingamaðurinn á Café Margaret á Breiðdalsvík réðst í morgun á framkvæmdastjóra AFLs Starfgreinafélags, Sverri Albertsson, á skrifstofu félagsins á Egilsstöðum. Tilefni árásarinnar er frétt er 24 stundir fluttu í síðustu viku um félagsleg niðurboð starfsfólks á ónefndu veitingahúsi á Austurlandi. Með fréttinni birti blaðið mynd af Café Margaret og sagði að samkvæmt heimildum blaðsins væri þetta veitingahúsið sem við væri átt.

    Lesa meira

    Kjaramálaráðstefna 19. - 20. sept.

    Verkamannadeild AFLs mun gangast fyrir ráðstefnu 19. - 20. september þar sem kjaramál og endurskoðun launaliða almennra kjarasamninga nk. áramót verða til umfjöllunar auk kjarasamninga starfsmanna sveitarfélaga sem lausir verða í haust. Ráðstefnan verður haldin í Neskaupstað.Neskaupstaður

    Námskeiðaáætun - starfsdagskrá

    Á næstu dögum verður Námskeiðaáætlun AFL fyrir haustið 2008 kynnt fyrir félagsmönnum svo og starfsdagskrá fram að áramótum. Um miðjan október hefst metnaðarfullur tölvuskóli AFLs sem verður auglýstur sérstaklega.

    Lesa meira

    Sævar Örn nýr yfirtrúnaðarmaður hjá ALCOA Fjarðaál

    Á fundi trúnaðarmanna AFLs og Rafiðnaðarsambandsins í gærkvöld baðst Ingibjörg Hjaltadóttir lausnar sem yfirtrúnaðarmaður félaganna hjá ALCOA Fjarðaáli. Kjör yfirtrúnaðarmanns fór síðan fram samkvæmt starfsreglum fulltrúaráðs félaganna hjá ALCOA og var Sævar Örn Arngrímsson, vélvirki, einróma kjörinn yfirtrúnaðarmaður starfsmanna.

    Lesa meira

    einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi