"Munum sýna auðmýkt" - AFL skoðar veraldarvefinn
Svissneski bankinn UBS tilkynnti um 2000 uppsagnir í gær og hefur þá alls sagt upp 6000 starfsmönnum á einu ári. Bankinn hefur tapað 42 milljörðum dollara í þessari lánakrísu. Stjórnarformaðurinn hét því á blaðamannafundi í gær að yfirstjórn bankans myndi leggja hart að sér og auðsýna auðmýkt. (af vef BBC í dag) Beðið er sambærilegra yfirlýsinga Íslenskra bankamanna.
Flutningur fjármagns lífeyrissjóðanna, stórfellt erlent lán, aukning veiðiheimilda, umsókn í EB, endurskoðun kjarasamninga. Þetta er meðal þeirra leiða sem að sögn eru kannaðar í dag en samkvæmt svartsýnistu þjóðfélagsrýnum blasir lítið annað við en efnahagslegt hrun á morgun, mánudag, verði ekkert að gert í dag.