AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Boða til verkfalla nema skýrri kröfu um 300 þús. króna lágmarkslaun verði mætt

Blaðamannafundur SGS  – 17. mars 2015

Boða til verkfalla nema skýrri kröfu um 300 þús. króna lágmarkslaun verði mætt

 

  • SA býður 6-9.500 kr. hækkun grunnlauna.
  • Verkfallsaðgerðir gætu hafist 10. apríl
  • Taka til um 7500 manns sem starfa á matvælasviði (fiskvinnslu, kjötvinnslu og í sláturhúsum) og í þjónustugreinum (ferðaþjónustu, ræstingum o.fl.), og tæplega 3000 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, iðnaði og flutningsgreinum.
  • Formaður SGS: „Vonumst til að hægt verði að afstýra verkfalli“

Starfsgreinasamband Íslands, sem fer með samningsumboð fyrir um ríflega tíu þúsund manns, hefur boðað til umfangsmikilla verkfallsaðgerða frá og með 10. apríl næstkomandi. Viðræðum sambandsins við Samtök atvinnulífsins var slitið fyrir sléttri viku síðan en mikið skildi þá á milli samningsaðila og ekkert þokaðist í samningsátt. Samtök atvinnulífsins hafið haldið fast við þá stefnu að laun almenns verkafólks hækki ekki um meira en 3-4%. Í krónum talið þýðir það hækkun grunnlauna um 6.000-9.500 kr. Slíkt er algerlega óviðunandi og var samninganefnd Starfsgreinasambandsins því knúin til að slíta viðræðunum og hefja undirbúning aðgerða. Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins: „Það er full alvara á bakvið þær kröfur sem við höfum sett fram en auðvitað vonumst við til að hægt verði að afstýra verkfalli.“

Eru með 201 þúsund króna grunnlaun í dag

Taxtar félagsmanna innan Starfsgreinasambandsins á almenna vinnumarkaðnum í dag eru frá 201.317 krónum en eftir 4 mánaða störf er lágmarkstekjutryggingin 214.000 krónur. Flestir hópar innan raða SGS eru með samningsbundna taxta upp á 207.814 krónur til 222.030 krónur eftir 7 ára starf. Hópferðabílstjórar sem eru í hæsta virka taxta hjá SGS eru með 238.043 krónur í grunninn eftir 7 ára starf.
Krafa um 300 þúsund króna grunndagvinnulaun innan þriggja ára
Starfsgreinasambandið hefur sett fram mjög skýr markmið í kröfugerð sinni; að lægstu taxtar verði komnir upp í 300 þúsund krónur innan þriggja ára, þ.e. að almennt verkafólk hafi möguleika á að framfleyta sér á grunndagvinnulaunum – svo er ekki í dag. Að auki vilja félagsmenn sambandsins:

  • Að fólk með hærri starfsaldur og/eða þeir sem hafi sótt sér fræðslu og menntun njóti þess.  
  • Að laun í útflutningsgreinum hækki sérstaklega.
  • Að vaktaálag hækki og heimild fyrirtækja til að greiða eftir vaktaálagi verði skilyrt við ákveðið hlufall af dagvinnutíma. Ella sé greidd yfirvinna.
  • Að desember- og orlofsuppbætur hækki.

Hverjir eru innan SGS – til hverra taka aðgerðirnar?
Samninganefnd Starfsgreinasambandsins á hinum almenna markaði fer með umboð fyrir rúmlega 10.000 manns en Flóabandalagið (Efling, Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis) semur sérstaklega, auk þess sem fjöldi sérkjarasamninga er í gildi og taka aðgerðirnar ekki til þeirra. Þá er töluverður hluti félaga í SGS í störfum hjá ríki og sveitarfélögum. Aðgerðirnar núna snúa eingöngu að Samtökum atvinnulífsins og atkvæði um verkfallsboðun verða greidd af félagsmönnum sem taka laun samkvæmt kjarasamningum á milli SGS og SA. 42% þeirra sem greiða atkvæði um verkfall starfa á matvælasviði (fiskvinnslu, afurðastöðvum, kjötvinnslum og í sláturhúsum) en 32% atkvæðisbærra félaga eru í þjónustugreinum (ferðaþjónustu, ræstingum o.fl.), aðrir hópar telja byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, iðnað og farartækja- og flutningsgreinar.
Alls eru um 50.000 manns innan Starfsgreinasambandsins og er sambandið stærsta landssambandið innan ASÍ.

Um atkvæðagreiðsluna – hvenær hún hefst og hvenær henni lýkur
Atkvæðagreiðslan um verkfall verður rafræn og stendur frá kl. 8:00 þann 23. mars til miðnættis þann 30. mars. Gert er ráð fyrir að niðurstaðan liggi fyrir 31. mars, rúmri viku áður en aðgerðirnar eiga að hefjast.

Nánari upplýsingar veitir: Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS í s. 695-1757

Skipulag aðgerða sem greidd verða atkvæði um

10. apríl 2015
Allsherjarvinnustöðvun frá klukkan 12:00 á hádegi til miðnættis sama dag, á félagssvæðum þeirra 16 aðildarfélaga sem veitt hafa SGS umboð.

14. apríl 2015
Vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis tekur til félagssvæða Einingar-Iðju, Stéttarfélagsins Samstöðu og Verkalýðsfélags Suðurlands.

15. apríl 2015
Vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis tekur til félagssvæða Verkalýðsfélags Snæfellinga, Verkalýðs- og sjómannafélags Sandgerðis, Bárunnar stéttarfélags og Stéttarfélags Vesturlands.

16. apríl 2015
Vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis tekur til félagssvæða Framsýnar stéttarfélags, Verkalýðsfélags Grindavíkur, Öldunnar stéttarfélags, Verkalýðsfélags Vestfirðinga og Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur.

17. apríl 2015
Vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis tekur til félagssvæða AFLs starfsgreinafélags, Verkalýðsfélags Akraness, Drífandi stéttarfélags og Verkalýðsfélags Þórshafnar.

27. apríl 2015
Vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis tekur til félagssvæða Framsýnar stéttarfélags, Verkalýðsfélags Grindavíkur, Öldunnar stéttarfélags, Verkalýðsfélags Vestfirðinga, Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur, Verkalýðsfélags Snæfellinga og Verkalýðs- og sjómannafélags Sandgerðis.

28. apríl 2015
Vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis tekur til félagssvæða Einingu-Iðju, Stéttarfélagsins Samstöðu og Verkalýðsfélags Suðurlands.

29. apríl 2015
Vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis tekur til félagssvæða  AFLs starfsgreinafélags, Verkalýðsfélags Akraness, Drífandi stéttarfélags, Verkalýðsfélags Þórshafnar, Bárunnar stéttarfélags og Stéttarfélags Vesturlands.

30. apríl 2015
Allsherjarvinnustöðvun frá klukkan 12:00 á hádegi til miðnættis sama dag, á félagssvæðum þeirra 16 aðildarfélaga sem veitt hafa SGS umboð.

12., 13., 15., 18., 19., 20., 21. og 22. maí 2015
Allsherjarvinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis sama dag, á félagssvæðum þeirra 16 aðildarfélaga sem veitt hafa SGS umboð.

26. maí 2015
Ótímabundin allsherjarvinnustöðvun hefst á miðnætti aðfaranótt 26. maí 2015 á félagssvæðum þeirra 16 aðildarfélaga sem veitt hafa SGS umboð.

Tög: Verkfall

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi