AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Vinnur þú á gistihúsi eða veitingastað í sumar?

thumb_vinnustadaskHafa ber í huga að allir sem vinna á slíkum stöðum eiga að bera vinnustaðaskírteini, þar sem fram kemur nafn og kennitala starfsmanns og fyrirtækis.

Atriði sem vert er að hafa í huga (úr kjarasamningum):

  • Þeir sem verða 16 eða 17 ára á árinu eiga strax að fá greitt miðað við 16 eða 17 ára í taxta, en þegar menn verða 18 ára er miðað við afmælisdaginn.
  • 22 ára lífaldur jafngildir starfsaldri eftir eitt ár.
  • Óheimilt er að greiða vaktaálag ef ekki kemur fram á vaktaplani hvenær vakt á að byrja og enda. Í þeim tilvikum greiðist dagvinna og yfirvinna. 
  • Í vaktavinnu greiðist álag á þann hluta 40 stunda vinnu sem fellur utan dagvinnutímabils:
    o    33% álag á tímabilinu kl. 17:00 - 00:00 mánudag til föstudaga.
    o    45% álag á tímabilinu kl. 00:00 - 08:00 alla daga svo og laugardaga og sunnudaga. 
  • Neysluhlé skulu vera sem svarar 5 mín. fyrir hvern unninn klukkutíma og skiptast eftir samkomulagi starfsmanna og stjórnanda. 
  • Óheimilt er að hafa orlof innifalið í launataxta. 
  • Jafnaðarkaup er ekki til í kjarasamningum. 
  • Að lágmarki skal borga 4 klst. í útkalli. 
  • Skoðaðu vel og geymdu alla þína launaseðla. 

Nánari upplýsingar fást á skrifstofum AFLs, í síma 4700300 eða með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi