AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Tækifæri til að koma skoðunum á framfæri

Forseti ASÍ og aðrir forystumenn Alþýðusambandsins ásamt formanni AFLs verða með opinn almennan fund um ástand í efnhags-og kjaramálum nk. þriðjudag á Hótel Héraði á Egilsstöðum. AFL Starfsgreinafélag mun aðstoða félagsmenn við að skipuleggja ferðir, Áfram ísland, velja til að skoða nánarsjá um hópferðir frá þeim stöðum sem þátttaka verður næg og að öðrum kosti taka þátt í ferðakostnaði þar sem fólk hefur samvinnu um bílanotkun. 

Gunnar Smári, starfsmaður AFLs, 4700 303, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  er ferðamálastjóri AFLs.

Launafólk á Austurlandi

Kynnum okkur máliðEfnahagsþrengingum fylgir atvinnuleysi. Atvinnuleysi er sóun á hæfileikum og starfsorku fólks. Til að mæta því ástandi sem nú blasir við hafa stéttarfélögin á Austurlandi tekið höndum saman við Þekkingarnet Austurlands,  Vinnumálastofnun Austurlandi og fjölmarga aðra aðila. Við höfum sett í gang  umfangsmikla dagskrá til endur-og símenntunar. Nk. mánudag kl. 13:00 verður á vegum félaganna og ÞNA kynningarfundur á því helsta sem í boði verður næstu vikurnar og mánuði. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Þekkingarnetsins að Vonarlandi, Tjarnarbraut 39e, Egilsstöðum.

Lesa meira

ALCOA dregur enn úr framleiðslu

AlcoaALCOA tilkynnti í kvöld að fyrirtækið hyggst draga enn úr framleiðslu á áli, eða um 350.000 tonn til viðbótar við samdrátt á árinu. Samdráttur síðustu mánaða verður þá 615.000 tonn en fyrir nokkrum vikum lokaði fyrirtækið verksmiðju í Texas. Í tilkynningu frá ALCOA segir að ekki verði lokað verksmiðju til að ná þessum samdrætti heldur verði dregið jafnt úr framleiðslu í starfandi verksmiðjum ALCOA.

Lesa meira

Svartur dagur á Egilsstöðum

MalarvinnslanÁ fundi með starfsfólki Malarvinnslunnar, stærsta verktakafyrirtækis á Austurlandi, tilkynnti stjórnarformaður fyrirtækisins, Gunnlaugur Aðalbjarnarson, að fyrirtækið væri komið í þrot og starfssemi legðist af í dag eða strax eftir helgi. Tæplega 100 manns hafa unnið hjá Malarvinnslunni síðustu mánuði en 160 starfsmenn voru í sumar þegar þeir voru flestir.

Lesa meira

Breyttar reglur um atvinnuleysisbætur

Sjá skýringar ASÍ hér Í dag var samþykkt á alþingi frumvarp um breytingar á lögum um atvinnuleysisbætur. Meginþáttur breytinganna snýr að minnkuðu starfshlutfalli en það eru algeng viðbrögð við efnahagsástandi nú, að samkomulag verði milli starfsfólks og stjórnenda um minnkað starfshlutfall.

Lesa meira

Mótmælum hækkun gjaldskrár

AFL Starfsgreinafélag hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu í kjölfar hækkunar á gjaldskrá hitaveitu í Fjarðabyggð:

Lesa meira

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi