AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Skipulag kjarasamninga hafið

Á fundi framkvæmdastjórnar Starfsgreinasambands Íslands í gær, voru þau Kristján Gunnarsson, formaður SGS, Björn Snæbjörnsson, varaformaður og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs, skipuð til að undirbúa skipulag komandi kjarasamninga. Félög SGS hafa ekki gert sameiginlegann kjarasamning um nokkra hríð heldur hafa svokölluð Flóabandalagsfélög, Efling, Hlíf og Verkalýðs-og sjómannafélag Keflavíkur, samið sér. Ofangreind nefnd á að gera tillögur að tilhögun komandi samningaviðræðna og samstarf Starfsgreinasambandsfélaganna. Á fundinum í gær tilkynnti Kristján Gunnarsson að hann myndi sækjast eftir endurkjöri sem formaður SGS og ennfremur Björn Snæbjörnsson, sem varaformaður.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi