AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Einn í farbann - yfirheyrslur fram á nótt

img_1118Einn starfsmanna GT verktaka / Nordic Construction var laust fyrir háfleitt sl. nótt úrskurðaður í farbann í hálfan mánuð. Embætti ríkislögreglustjóra krafðist farbannsins en efnhagsbrotadeild lögreglunnar hefur tekið við rannsókn kærumála starfsmanna GT verktaka / Nordic Construction oog Vinnumálastofnunar á hendur þessum fyrirtækjum.

Lesa meira

Aðallvitnið horfið - Vitnaleiðslur í allan dag

Annað lykilvitni í máli sem fyrrverandi starfsmenn GT / NOrdic Construction hafa kært til lögreglu og höfða innheimtumál  vegna, er farið úr landi. Beðið var um frest á vitnaleiðslum í gær af hálfu lögmanns GT og þá fullyrt að ekki væri hætta á að vitni færu úr landi - en í gærkvöld hætti maðurinn að svara síma og í dag bárust þær fréttir að hann væri kominn úr landi.

Lesa meira

Fjöldauppsagnir að taka gildi

Á vinnusvæði Arnarfells við Hraunaveitu á Kárahnjúkasvæðinu var í lok september tilkynnt um uppsagnir 90 starfsmanna Arnarfells, 88 starfsmanna undirverktaka Arnarfells og auk þess hætta störfum 15. okt. um 55 starfsmenn sem voru á tímabundnum ráðningarsamningum.

Lesa meira

Þetta sögðum við allan tímann!

Mál starfsmanna GT verktaka á Kárahnjúkasvæði var fyrirsjáanlegt. AFL og fleiri verkalýðsfélög vöruðu við þessum aðstæðum m.a. í umsögnum til alþingis vegna laga sem samþykkt voru í maí sl. Ekkert var hlustað á verkalýðsfélögin og nú sitjum við öll í súpunni. Sjá lög um skyldur fyrirtækja með erlenda starfsmenn og umsögn AFLs um þau. Umsögin var skrifuð í febrúar og nú er allt að gerast sem við óttuðumst.

Lesa meira

Nýttu þér netið - námskeið AFLs

„Nýttu þér netið" - nefnist námskeiðaröð sem AFL Starfsgreinafélag heldur á öllum þéttbýlisstöðum félagssvæðisins. Námskeiðin eru félagsmönnum AFLs að kostnaðarlausu en námskeiðsgjald fyrir utanfélagsmenn er 2.000,-. Námskeiðin verða haldin allstaðar þar sem nægileg þátttaka fæst.

Lesa meira

Hótanir og mútur - "Svona er Ísland í dag".

Fulltrúar fyrirtækjanna GT eða Nordic Construction, en erfitt er að ráða í hvur er hvurs, komu á hótel á Egilsstöðum í morgun þar sem Lettneskir félagsmenn AFLs og fyrrverandi starfsmenn þessara fyrirtækja gista, en mennirnir hafa leitað aðstoðar félagsins við að innheimta rétt laun fyrir vinnu sína.

Lesa meira

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi