Kynningarfundum á nýjum kjarasamningum lýkur í dag. Í morgun var haldinn fundur í Fiskverkun Kalla Sveins á Borgarfirði eystri og mátti fulltrúi félagsins grípa til skóflunar á leið sinni á fundinn. Það var vel mætt á fundinn á Borgarfirði.
Síðasti fundur starfsmanna félagsins til að kynna kjarasamningana er á Höfn á Hornafirði fyrir verslunarmenn í félaginu.
14. mars 08:00 – Morgunverður 09:00 – Ímynd, áhrif og fjölmiðlar – Snorri Már Skúlason Deildarstjóri ASÍ 09:50 – Kaffihlé 10:00 – AFL – ímynd – aðgerð og árangur - Sverrir Albertsson, AFLi 10:45 – Hópavinna 11:30 – Pallborð um ímyndarvinnu 12:30 – Hádegisverður 13:30 – Ráðstefnustjóri tekur saman umræður. Eyrún Björk Valsdóttir 14:00 – Pallborð með niðurstöðum hópa og umræður um málefni fundarins 15:00 – Ráðstefnu slitið - Kaffi 15:30 – Heimför
Ferðir verða á vegum AFLs Starfsgreinafélags. Þátttaka tilkynnist á næstu skrifstofu félagsins eða til Gunnars Guðmundssonar, tengiliðs trúnaðarmanna félagsins, Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript. eða 4700 303. Fæði og gisting á vegum félagsins.
Undirbúningur fyrir ársfund trúnaðarmanna AFLs 2008 stendur nú sem hæst en búist er við um 80 trúnaðarmönnum félagsins á fundinn. Ársfundurinn verður haldinn á Höfn á Hornafirði að þessu sinni. Dagskráin verður sniðin að breyttum aðstæðum á vinnumarkaði og á félagssvæði félagsins.
Formaður AFLs og framkvæmdastjóri halda kynningarfund í kaffistofu HB Granda á morgun og almennan félagsfund kl. 1800 í húsnæði félagsins að Lónabraut 4.
Tíu einstaklingar hófu í gær formlega endurhæfingu á vegum Starfsendurhæfingar Austurlands en átta mánuðir eru síðan fyrst komu fram hugmyndir um stofnun StarfA. Erla Jónsdóttir er forstöðumaður StarfA.
Samninganefnd AFLs ákvað á fundi sínum í gærkvöld að það færi fram allsherjaratkvæðagreiðsla um nýgerða kjarasamnigna með póstatkvæðagreiðslu. Atkvæðaseðlar verða settir í póst á morgun eða mánudag en atkvæði verða talin 10. mars nk.