Nei frá ríkisstjórn
Embættismenn ríkisstjórnarinnar höfnuðu í dag tillögum sem landssambönd Alþýðusambands Íslands lögðu fram fyrripart desember um m.a. skattalækkanir. Með því er staða kjaraviðræðna komin í uppnám og náist ekki árangur fyrir helgi má búast við að Starfsgreinasambandið vísi kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara.
Hugmyndir ASÍ félaganna voru m.a. sérstakur persónuafsláttur fyrir þá tekjulægstu en á þeim grunni byggði samflot landssambandanna innan ASÍ um launaramma. Með því að ríkisstjórnin hefur hafnað þessum hugmyndum munu landssamböndin leita samninga hvert fyrir sig. Boðaður hefur verið fundur samninganefndar SGS í hádeginu á morgun.
Gleðilegt ár - þökkum samstarfið á liðnu ári
Um þessi áramót er launafólk á Austurlandi að mestu sameinað í eitt stéttarfélag. Með sameiningum félaga sem orðið hafa síðustu 10 ár hafa aðildarfélög Alþýðusambands Íslands á Austurlandi sameinast í eitt - að Verslunarmannafélagi Austurlands undanskildu. Með þessu hafa Austfirðingar mætt nýjum tíma og nýjum áherslum og kröfum samtímans til starfssemi stéttarfélaga.
Kjarasamningur smábátasjómanna
Trúnaðarmannanámskeið I
Trúnaðarmannanámskeið I verður haldið dagana 10. og 11. janúar n.k. og hefst kl: 09.00 báða dagana. Kirkjumiðstöðin á Eiðum mun hýsa námskeiðið og þeir þátttakendur sem það kjósa munu gista á staðnum. Þátttakan virðist ætla að verða nokkuð góð því að alls eru skráðir um tuttugu manns af öllu svæði félagsins.
Skattleysismörkin hækka um áramótin
Więcej artykułów…
- Stjórn sjómannadeildar
- Bætt staða fiskvinnslufólks í hráefnisskorti
- Stofnfundur Sjómannadeildar AFLs
- Rýnihópur um húsbyggingu
- Tillögur málþings -sagan varðveitt
- Kröfugerð lögð fram
- Skrifum söguna - vertu með
- Siðfræðnámskeið Vopnafirði
- Starfsendurhæfing Austurlands
- Góður dagur í dag: Starfsendurhæfing tekur til starfa