Fundað með sjómönnum
Grétar Ólafsson, formaður Sjómannadeildar AFLs, hefur haldið fundi síðustu daga með sjómönnum á félagssvæði AFLs í aðdraganda samningaviðræðna komandi samninga. Grétar fundaði í gær með áhöfn togarans Gullver frá Seyðisfirði, ásamt Hjördísi Þóru, formanni AFLs og starfsfólki AFLs.