AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Kynningarfundir á vinnustöðum

Nýjir kjarasamningar hafa verið kynntir víðsvegar á vinnustaðafundum og almennum fundum á félagssvæði AFLs síðustu daga. Á laugardag var almennur fundur á Reyðarfirði sem var illa sóttur. Á mánudag voru vinnustaðafundir á Seyðisfirði og Breiðdalsvík og Eskifirði og almennur fundur á Seyðisfirði.

Í gær þriðjudag voru vinnustaðafundir á Fáskrúðsfirði, Eskifirði og Neskaupstað. Ennfremur opinn fundur í Egilsbúð á Neskaupstað um kvöldið. Iðnaðaðarmannadeild AFLs hefur haldið kynningarfundi á Höfn Hornafirði, Reyðarfirði, Neskaupstað og Egilsstöðum.

Almennu fundirnir hafa almennt verið illa sóttir en vinnustaðafundir hafa fengið góða athygli.

Í dag miðvikudag verða kynningarfundir á vinnustöðum á Egilsstöðum.

Atkvæðaseðlar verða sendir félagsmönnum AFLs á morgun og leiðbeiningar um atkvæðagreiðslur og kjörskrárkærur birtar á heimasíðu félagsins.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi