AFL starfsgreinafélag

Sveitamennt - reglur

Sveitarfélagadeild Sveitamenntar SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga
STARFSREGLUR

1. Sveitarfélagadeild er hluti af starfsmenntunarsjóði aðila og er markmið deildarinnar að auka möguleika sveitarfélaga og stofnana þeirra á að þróa starfssvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerða eru til þeirra á hverjum tíma og efla starfsmenntun starfsmanna sem eru í þeim félögum sem eiga aðild að sjóðnum með það fyrir augum að þeir séu færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni.

2. Deildin sinnir hlutverki sínu með því að veita styrki til fræðsluverkefna á sviði starfsmenntunar sem eru í samræmi við markmið sveitarfélaga sem í sjóðinn greiða; stéttarfélaga sem að sjóðnum standa; eða verkefna sem sjóðstjórn skipuleggur. Auk þess styrkir deildin verkefni sem aðilar semja um í kjarasamningi.

3. Umsóknir skulu sendar til stjórnar sjóðsins þar sem fram kemur lýsing á því fræðsluverkefni sem sótt er um styrk til ,skipulagi þess, efnisinntaki, áætlaðri framkvæmd, kostnaði, öðrum styrkjum og framlagi umsækjanda. Úthlutun úr sjóðnum skal fara fram a.m.k. ársfjórðungslega. Stjórnin skal koma sér upp samræmdu matskerfi á umsóknum meðal annars með tilliti til þeirra þarfa sem umsækjandi telur sig vera að uppfylla.

Ath. Undanskilið er háskólanám starfsmanna hjá sveitarfélögum eða stofnunum þeirra. Slíkt nám er styrkt með einstaklingsstyrkjum. (Breyting tók gildi f.o.m. 1. okt. 2014)

Ath. Stjórn sjóðsins heldur fundi mánaðarlega og afgreiðir umsóknir með framkvæmdastjóra á þeim fundi.

Öll starfstengd og almenn námskeið á vinnustað eru styrkt 100% af kostnaði gagnvart þeim þátttakendum sem jafnframt eru félagsmenn í aðildarfélagi Starfsgreinasambands Íslands á landsbyggðinni. Sjá hér á síðunni undir „Aðildarfélög“. Ef sveitarfélög og stofnanir þeirra sækja um styrki vegna tómstundanámskeiða þá eru þau styrkt um 50% af kostnaði gagnvart sama hópi starfsmanna. Ítrekað er að launakostnaður sveitarfélaga er aldrei hluti af þeim kostnaði námskeiða sem Sveitamennt styrkir, þá er heldur ekki tekinn með kostnaður vegna veitinga og bókakaupa á námskeiðum.
Styrkloforð stjórnar hverju sinni eru ávallt gerð upp og styrkur greiddur eftir að verkefnið hefur farið fram – eða námskeið hefur verið haldið. Slíku uppgjöri þarf að fylgja þátttakendalisti þar sem fram kemur félagsaðild starfsmanna og kvittanir fyrir staðfestum kostnaði.

Ef sótt er um styrki að námskeiði loknu með tilskyldum fylgigögnum þá er styrkur gerður upp um leið og umsóknin er samþykkt hjá stjórn.

Tekið er á móti allt að 12 mánaða gömlum kvittunum/reikningum.

Veittir eru þróunar-og nýsköpunarstyrkir í rafrænt námsumhverfi sveitarfélaga og stofnana, uppsetningu og þróun. Stjórn sjóðsins metur slíkar umsóknir hverju sinni. Áskrift að rafrænu námsumhverfi/námskerfi er styrkt um 100% af reikningi í hlutfalli við fjölda starfsmanna sem aðild eiga að sjóðnum. Aldrei greitt meira er sem nemur kr. 6.000 pr. starfsmann á ári. Gert er ráð fyrir áskrift í a.m.k. 6-12 mánuði.

Sjá hér: Reglur um styrkveitingar vegna uppsetningar á rafrænu námsumhverfi.

Náms- og kynnisferðir
Sveitamennt veitir styrk að hámarki kr. 170.000.- til stofnunar vegna þátttöku hvers einstaklings/starfsmanns í náms- og kynnisferðum innanlands eða utan. Styrkurinn nær yfir kostnað v/flugs, gistingar og ferða á milli staða. Umsókn skal skila til sjóðsins á þar til gerðu rafrænu eyðublaði. Stjórn Sveitamenntar metur hvort umsóknin er styrkhæf. Hámarksstyrkur til slíkra verkefna er veittur til stofnanna á fjögurra ára fresti. 

Við afgreiðslu umsóknar hefur stjórn eftirfarandi til hliðsjónar:

  •      Hvort tilgangur ferðarinnar sé að starfsmenn viðkomandi stofnunar kynni sér sambærilega starfsemi og heimsóknin nýtist þeim til framþróunar í starfi.
  •      Hvort um er að ræða til viðbótar þátttöku í námskeiði, kynningu og/eða tengsl við nýbreytni og eða þróunarstarf.
  •      Að umfang dagskrár sé að a.m.k. 1- 2 dagar í hlutfalli við lengd ferðar.
  •      Að staðfesting móttökuaðila fylgi umsókn.
  •      Nafnalisti skal fylgja umsókn.

Að verkefni loknu skal fylla út og skila til skrifstofu sjóðsins uppgjöri vegna ferðarinnar, en það á að innihalda lista yfir þátttakendur, félagsaðild þeirra og afrit af greiddum reikningum.

Nám/námskeið erlendis
Ef sveitarfélag eða stofnun á þess vegum óskar eftir að senda starfsmann/menn til að sækja nám/námskeið erlendis sem ekki stendur til boða innanlands, getur það sótt um 75 % af kostnaði ferðarinnar og 100% vegna kostnaðar við námskeið. Styrkur getur þó ekki orðið hærri en 130.000.- vegna hvers starfsmanns. Ef sambærilegt námskeið er í boði innanlands er ferðakostnaður undanskilinn heildarkostnaði og því ekki styrktur. Ath.! Námskeiðsgögn/bækur er ekki styrkt sérstaklega. (síðast breytt í febrúar 2018)

Fræðslustjóri að láni
Sveitarfélög geta gert samning við Sveitamennt og fleiri fræðslusjóði um fræðslustjóra að láni í ákveðinn tíma til þess aðgreina fræðsluþarfir og í kjölfarið gert fræðsluáætlun sem hentar. Slíkt verkefni aðstoðar sveitarfélög við að koma á markvissara skipulagi í tengslum við endur-og símenntun starfsmanna sinna.

Eigin fræðsla
Sveitarfélög geta sótt um styrk til að kosta fræðslu sem fram fer innan stofnanna þeirra með eigin leiðbeinendum. Gerður er samningur um slíka fræðslu fyrirfram, það er áður en námskeið eru haldin.

Samstarfssamningur Sveitamenntar og Fræðslusetursins Starfsmenntar
Félagsmenn í aðildarfélögum innan SGS geta sótt námskeið sem Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á vítt og breitt um landið. Sveitamennt greiðir skv. samningi milliliðalaust, fyrir þátttöku þeirra almennu starfsmanna sveitarfélaga sem jafnframt eru félagsmenn aðildarfélaga SGS á landsbyggðinni.

*Reglur þessar voru samþykktar á fundi stjórnar Sveitamenntar þann 27. nóvember 2006. Þær geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni.
*Reglur vegna styrkja til náms- og kynnisferða voru samþykktar á fundi stjórnar Sveitamenntar 13. desember 2011 og tóku gildi f.o.m. 1. janúar 2012.
*Reglum um styrki til náms-og kynnisferðasíðast breytt 1. september 2013.
*Viðbót við reglu samþykkt 21. október 2014
*Reglur um styrki vegna náms/námskeiða erlendis tók gildi f.o.m. 1. september 2013.
*Reglur um styrki vegna náms- og kynnisferða breytt 13. júní 2017. Hámarksupphæð lækkuð í 130.000.- og tekur gildi f.o.m. 1. september 2017.

*Reglur um styrki vegna náms-og kynnisferða breytt 16.febrúar 2023. Hámarksupphæð hækkuð úr 130.000,- í 170.000,-  og hámarksstyrkur til slíkra verkefna fjölgað úr þremur árum í fjögur ár. Breytingin tekur gildi f.om. 1.janúar 2023.