Góður hópur félagsmanna AFLs hefur sótt námskeið í ferðaþjónustu síðustu daga hjá Þekkingarneti Austurlands á Egilsstöðum. Í morgun var farið í vinnusiðferði og kjarasamninga, réttindi og skyldur.
Starfsmaður AFLs var leiðbeinandi með hópnum í dag og smellti þessari mynd af flottum hóp ungs fólks sem sinnir ferðamönnum á Austurlandi í sumar.
Samninganefnd AFLs Starfsgreinafélags fundaði seinnipartinn í dag. Fundurinn var vel sóttur eða um 40 fulltrúar. Fundurinn hvetur forystu ASÍ til að standa fast á kröfu um áður umsamdar launahækkanir en hvetur jafnframt til samstöðu innan hreyfingarinnar. ályktunina má sjá hér:
Búast má við að samninganefnd AFLs Starfsgreinafélags verði boðuð til fundar með stuttum fyrirvara - sennilega fyrir helgi. Starfsgreinasamband Íslands kynnti á formannafundi sambandsins í dag tilboð SA vegna framlengingar kjarasamninga og er ætlunin að kanna formlega afstöðu einstakra félaga á næstu dögum.
Aðalfundur Stapa lífeyrisssjóðs var haldinn í gær í Mývatnssveit. Á fundinn mættu 17 fulltrúar AFLs. Á fundinum voru afgreidd hefðbundin ársfundarstörf. Afkoma sjóðsins á síðasta ári ber keim að því umhverfi sem hann starfar í og var niðurstaða ávöxtunar hans nafnávöxtun upp á 0,21% en raunávöxtun -13,88%. Ekki var borin upp tillaga að skerðingum réttinda á fundinum og því verður engin skerðing hjá Stapa, en margir lífeyrissjóðir hafa þurft að skerða réttindi sjóðfélaga sinna á ársfundum undanfarna daga. Þótt afkoma Stapa sé slæm þá er hún mun betri en flestra sambærilegra sjóða. Afkoma séreignasjóða Stapa var mjög góð. Sjá nánar á www.stapi.is
Boðuð hefur verið rekstrarstöðvun vegna hráefnisskorts í fiskiðjuveri Brimbergs. Stöðvunin var kynnt starfsfólki með fjögurra vikna fyrirvara nú fyrir mánaðarmótin.
Þetta er venjubundin stöðvun hjá Brimbergi sem setur togarann Gullver í slipp á hverju ári.