Í gærkvöld var formlegur stofnfundur Fulltrúaráðs starfsmanna í álveri ALCOA Fjarðaáls á Reyðarfirði. Formenn AFLs og Rafiðnaðarsambands Íslands sátu fundinn ásamt starfsmönnum félaganna auk trúnaðarmanna og öryggistrúnaðarmanna.
Morgunblaðið hefur lokað skrifstofu sinni á Austurlandi og verður fréttaskrifum blaðsins sinnt frá Reykjavík. Meðfylgjandi tilkynning barst um helgina til AFLs og annarra aðila á Austurlandi sem átt hafa samskipti við fréttamanna Mbl. á Austurlandi síðustu misseri.
Í samningum við Samtök atvinnulífsins sem gerðir voru í febrúar urðu breytingar á orlofi. Engar breytingar urðu á lágmarksorlofinu, það er óbreytt 24 dagar og 10,17% af öllu kaupi. Orlofsuppbætur. Breytingarnar koma síðan inn til þeirra sem lengur hafa starfað með eftir farandi hætti:
Frá og með 1. júní 2008 greiða foreldrar í Fjarðabyggð aðeins vistunargjald fyrir eitt barn á leikskóla. Á bæjarráðsfundi þriðjudaginn 27. maí var ákveðið að fella niður vistunargjald af öðru barni en áður hafði sveitarfélagið samþykkt fjögurra klukkustunda gjaldfrjálsa vistun fyrir fimm ára börn. Með þessari ákvörðun vill sveitarfélagið sýna í verki að vera fjölskylduvænt samfélag þar sem barnafólk finnur að það er á góðum stað. (Af heimasíðu Fjarðabyggðar)
Skrifað hefur verið undir nýjan kjarasamningfyrir félagsmenn sem starfa hjá Ríkinu. SGS
var með umboð AFLStil að ljúka samningi
og var skrifað undir í nótt. Samningurinn gildir einungis til11 mánaða eða til loka mars 2009.
Félagsmönnum verður kynntur samningurinn á næstu dögum
ogpóstatkvæðagreiðsla verður viðhöfð og
þarf henni að vera lokið 20. júní nk. Sjá samninginn hér