Námskeið og ófærð
Fimmtán félagar í AFLi sitja nú bræðslunámskeið á Breiðdalsvík. Leiðbeinandi á námskeiðið sat veðurtepptur í Reykjavík í kvöld en kemur með fyrstu vél austur. Staðgengill var fundinn til að hlaupa í skarðið á meðan.

Fulltrúar AFLs og trúnaðarmenn hjá ALCOA Fjarðaál ásamt fulltrúum Rafiðnaðarsambands Íslands og trúnaðarmönnum héldu fund með forsvarsmönnum ALCOA Fjarðaál í gær þar sem farið var yfir uppsagnir tveggja starfsmanna sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu.
Fulltrúar AFLs Stephen Johnson, Björgvin Erlendsson og Sverrir M. Albertsson á formannafundi sjómannasambandsins sem haldinn var 26 og 27 okt.
Björgvin var kjörinn formaður Sjómannadeildar AFLs á stofnfundi félagsins í apríl sl. Stephen var formaður Sjómannadeildar Vökuls fyrir sameiningu félaganna og Sverrir er starfsmaður AFLs. Stofnfundur Sjómannadeildarinnar er fyrirhugaður næstu vikurnar.
Formennn og framkvæmdastjórn SGS fundaði í gær vegna undirbúnings komandi kjarasamninga. Að loknum fundi framkæmdastjórnar komu formenn landsbyggðafélaga SGS saman til skrafs og ráðagerða.